08 December 2009
nóvember gleymdist, þá er það bara desember
Við erum búin að ákveða að vera heima um jólin og er það frekar sniðugt þar sem við höfum verið ein jóla fyrir vestan, ein fyrir austan og nú erum við að reyna að finna okkur milliveg... semsagt okkar jól...
Vantar smá hjálp, við getum ekki alveg ákveðið hvað við eigum að hafa í matinn á aðfangadag, hugmyndirnar eru
lambalærisneiðar í raspi.
Svínalærisneiðar í raspi
hangikjöt
hvað finnst ykkur hljóma best, svona með tilliti til þess að það verður að passa saltið þar sem bjúgur er mjög algengur hjá mér þessa dagana!
Endilega koma líka með fleiri hugmyndir...
Ég er búin að ganga frá öllum jólagjöfum nema Bjarna gjöf, er mjög týnd í hugmyndum fyrir hann, eina sem vantar að endurnýja eru náttbuxur og sundskýla og ja, búin að gefa honum náttbuxur bæði jólin okkar og sundskýlur fyrstu jólin... þannig að mig langar ekki alveg að gefa honum svoleiðis þessi jól líka...
endilega komið með hugmyndir, í versta falli get ég ekki nýtt mér þær.
Í barna stússinu er það nýtt að núna í dag er mánuður í settan dag...
spennan alveg farin að segja til sín, en segjum bara að við teljum í settan dag en barnið verður allaveganna komið í heiminn 21. jan, síðasta lagi...
erum komin með rúm sem verður notað til að byrja með, sængin er á leiðinni, fór með pabba og keypti vagn 14. nóv. þá vorum við fyrir sunnan því Þrymur Rafn var skýrður 15. nóv. keyptum skiptidýnu og smá meira fyrir barnastúsið.
Ég er ekki farin að safna að mér miklum fötum, búin að kaupa 2 sokkabuxur, 2 samfellur og eina peysu sem eiga að passa við fæðingu. er langt komin með heimferðagallan, á reyndar eftir húfuna en peysan að verða hálfnuð og bara eftir að setja tölur á buxurnar... Hjálpar líka að Hulda Hrönn ætlar að senda mér fötum sem Þrymur er orðin of langur í þannig að ég mun alveg eiga nóg af fötum svona áður en ég get farið í búð og verslað eftir litum... en það er bara ekkert hlaupið að því að fá hlutlausa liti á barnafötum, allt með bleiku eða bláu eða prinsessum eða bílum...
Ég er ennþá að vinna, virðist hneiksla marga en eins og er þá er smá bjúgur farin að koma, þreyta komin í bakið og grindina en ekkert meira og meðan ég get gert gagn í vinnunni vill ég vera þar... þá það verði ekki nema 4 tíma vaktir en er með 6 í mesta lagi núna og það er frekar mikið þegar það er mikið að gera.
Við ákváum að setja saman smá lista yfir það sem okkur vantar af stórum hlutum fyrir barnið þar sem það er bara ekki mikið... og gæti alveg verið að einhverjum vanti hugmyndir...
Matarstóll (ekki búin að ákveða hvort við viljum tripptrapp eða hókuspókus)
Barnapíugræja
Ömmustóll
Fáum sling (burðarpoka) frá Huldu og co.
Rimlarúm frá Foreldrum Bjarna
Vagninn frá Foreldrum mínum
Keyptum bílstólinn notaðan hjá Birgittu Rán
Suma vonandi brjóstagjafapúðan fljótlega, þar sem ég er búin að fá kúlur í hann og kaupa efni...
vildum ekki skiptiborð.
endilega bendið mér á ef ég er að gleyma einhverju...
því fyrr því betra, get alveg verið að gleyma einhverju...
kveðja Guðrún Ásta í jólaskapi!
29 October 2009
langt síðan síðast... október..
búið að vera helling af afmælum, og óska ég þeim afmælisbörnum öllum til hamingju með afmælið, held ég hafi munað eftir flestum á facebook þannig að óþarfi að telja alla upp hér...
er komin á þá skoðun að facebook er að koma í staðin fyrir blogg þannig að spurning hvort síðan verði ekki bara lögð niður í janúar...
ég hef alltaf pælt mikið í því að þegar stelpur eru óléttar taka þær alltaf viku viðmiðin af ljósmóðir.is og setja á bloggin sín, ég er svo mikið öðruvísi að ég lifði fyrir þessi viðmið fyrst vikurnar meðan ég var að átta mig á því að ég væri ólétt.. en núna þarf ég ekkert svoleiðis, man sjaldnast eftir að kíkja og sjá hvernig barnið er að þroskast...
hitt er svo annað mál að það er framtíðar hlaupari eða eitthvað álíka í maganum á mér því það vantar sko ekki spörk og fyrirferð...
en þar sem ég er nú farin að skrifa um krílið þá erum við komin 30 vikur á morgun sem þýðir að í dag eru 8 vikur til jóla... mig hlakkar skuggalega til jólanna enda alltaf gaman um jólin, en hinsvegar er ekki komið í ljós hvort við verðum heima eða freistumst til að skella okkur austur svona þollák, aðfangadag og jóladag þar sem okkur finnst skrítið að hugsa til þess að vera bara 2... það ætti bara að skýrast á næstu 6 vikum...
Óléttan í heild gengur frekar vel, er með frekar lágan blóðþrýsting sem þýðir að ég má borða helling af lakkrís - búin að vera að því og finnst eiginlega lakkrís sér vondur... ekki nógu góð útkomma... sykurþolið er sennilega lélegt og því borða ég mikið hrökkbrauð og te með sætuefni en ekki sykri... miklu hollara alltaf þannig að gott að venja sig bara á það... og já veit ekki hvað bjúgur eða brjóstsviði er þrátt fyrir að hafa testað bayoneskinku með tilheyrandi hér um daginn...
þannig að mér er alveg ætlað að vera ólétt... sérstaklega þar sem ég hef bara þyngst um 3 kg síðan ég varð ólétt sem er sirka 1kg á hverjar 10 vikur... Bumbann er samt alveg huge og ekkert alltaf gaman að fara á fætur á morgnanna... en get þó sætt mig við að eftir rúmar 10 vikur ætti hún að vera búin að minnka helling og ég komin með kríli....
en kveð í bili, með hor og hósta, þar sem ég er á 3 degi heima með flensu... samt ekki svínaflensu...
28 September 2009
September
búin að yfirstíga 25 vikna ferli meðgöngunnar og bæði búin að eiga afmæli...
ákváðum að vera ekkert að spreða í óþarfa og keyptum okkur frystikistu í afmælisgjöf...
Í gær var svo stór dagur, 2 ár síðan við "byrjuðum saman" semsagt búin að afreka margt saman og gera helling saman og jól nr. 3 alveg á næsta leiti... enda minna en 100 dagar eftir af árinu.
Það er lítið í fréttum hjá okkur sem ekki tengist væntanlegum erfingja.
ég er lág í járni og há í sykri þannig að það þarf svoldið að passa mataræðið... ásamt því sem þetta barn sparkar og spriklar eins og við vitum ekki hvað og gengur bumban stundum í bylgjum sem var ekki eitthvað sem ég átti von á...
Annars eru við búin að fara vestur að smala og er ekki alveg ljós hvort við förum einusinni enn á þessu ári, það er bara seinni tíma vandamál...
ætlum austur fljótlega og svo bara vera heima...
en ákvað að henda inn nokkurm línu þar sem ég hafði tíma til...
bæ í bili.
27 August 2009
20 vikna sónar
en við eigum lítin þrjóskupúka, það var ekkert verið að leyfa okkur að sjá andlitið eða milli lappana, það var haft mikið fyrir því að fullvissa okkur á því að það væri efri vör til staðar þar sem það var tekin pása og ég látin standa upp og svona til að hreyfa eitthvað við barninu... frekar skondið!
en staðan í dag breyttist... 21. vika á morgun og áætlaður fæðingardagur er orðin 8. janúar... flýtt um 2 daga...
fullt af fólki búið að giska á kynið og í heildina held ég að fleiri segi strákur... en endilega verið áfram dugleg að giska því það kemur að því að við komumst að því, vonandi fyrr en seinna... svona uppá nöfn að gera og svoleiðis... er alveg tóm með stelpunöfn... bara flókið að taka svona mikið af ákvörðunum...
16 August 2009
ágúst...
Get ekki sagt að það sé mikið í fréttum á þessu heimili enda ekki mikið um að vera svona almennt. kemur lítið uppá og erum bæði bara að vinna á fullu þannan mánuðinn.
Hugsa nánast á hverjum degi að nú ætli ég að blogga um umferðina hér á Akureyri en ökukennarinn minn var víst svö allt öðruvísi en þeir sem kenna hér að mér var kennt að nota stefnuljós, bæði svo fólk vissi hvað ég ætlaði mér og auðvelda þannig umferðina fyrir öllum... svoleiðis er sko ekki gert hér á Akureyri nema í hallæri og stend ég sjálfa mig stundum að því að verða pínu pirruð yfir þeirri staðreynd að Akureyringar kunni ekki á þessi ómerkilegu stöng sem lætur stefnuljósin blikka... En nóg með það...
Vinnan hefur einkennst mjög mikið af því að ég loka, ekki sátt við það en það fer að koma að því að ég fer bara í 50% starf og þá verð ég mest megnis að loka þannig að ég verð bara orðin vön. Málið er semsagt þannig að vegna þess hvað stundataflan mín er óhentug þá ákváðu yfirmennirnir að bjóða mér 50% vinnu og sjá svo til hvort ég geti unnið eitthvað extra og fá það þá sem yfirvinnu... en sé til með það þegar samnignurinn er kominn til landsins...
Ég á ennþá inni 2 sumarfrísdaga og ætlaði upphaflega að nýta þá þessa helgi þar sem ég er að fara í próf á morgun en vegna þess að allt aukafólkið þurfti að vera í fríi þessa helgi ákvað ég að taka bara frí 27. og 28. ágúst skólinn byrjar 27. og þann dag förum við líka í 20 vikna sónar og fáum vonandi að vita hvaða kyni við eigum von á. Ég segi vonandi því það er víst ekkert alltaf 100% að börnin sýni foreldrunum það þó það sé vilji þeirra.
En svona í tilefni af því að það eru bara 10 dagar þangað til við fáum að vita... þá langar mig að kanna hvað þið haldið... Stelpa eða Strákur...
Erum samt ekki búin að ákveða hvort við deilum þessum upplýsingum en það verður þá hér en ekki á facebook... þetta er meira privat og þessvegna vill ég frekar nota þetta...
en kveð í bili...
Guðrún Ásta og bumbann...
31 July 2009
ágúst alveg að verða kominn..
Mamma hans Bjarna varð 50 ára 24. júlí
Jón (hennar Nönnu) varð 25 ára 14. júlí
Nonni mágur varð 30 ára 17 júlí og
Hafsteinn mágur 31 árs 4 júlí...
þetta eru helstu afmælin og segi ég bara til hamingju allir með alla áfangana...
lítið búið að vera að gerast í okkar lífi annað en eitthvað bumbutengt, komin með vagn og fáum bílstól hjá henni Birgittu Rán...
Mamma kom í heimsókn og náði ég að afreka það að fara alla leið á Sigló í fyrsta skipti, heimsóttum þar Sissu frænku sem er systir Línu Ömmu...
síðan er mánuðurinn bara búin að einkennast af því að hafa nóg að gera, gestir og heimsóknir, fáum bræðr hans Bjarna í heimsókn yfir helgina og mamma nýfarinn... svo fórum við vestur, austur og vorum eitthvað hér heima.
Næsti mánuður verður held ég bara hér heima, enda bara 2 fríhelgar, 1 próf og skólinn byrjar... þannig að það er nóg að gera hjá mér... Bjarni aðalega að vinna og eflaust leika sér með bensín bílinn sem hefur eiginlega ekki fengið athygli þetta sumarið sökum þess að það er svo mikið að gera...
svo er planið að fara 1 fríhelgina suður, setja þá saman hvað það er sem okkur vantar eða langar í fyrir barnið og hafa það bara á lista hjá fifunni eða okkur þannig að það verði allt á hreinu...
annars bara gott að frétta...
07 July 2009
júlí
síðustu 2 vikur hafa verið þétt setnar og ég ætla að segja frá þeim í punktum
- flugum til tenerife 24. júní, sól og hiti.
- skoðuðum bæinn.
- fórum í nýjasta mollið á okkar hluta eyjarinnar.
- Fórum í Siam Park... rennibrautagarður, ekkert margar rennibrautir en svakalega gaman.
- Fórum margsinnis út að borða. (misgott en mjög oft tilboð með 3 rétta máltíðum)
- Sólbað á ströndinni, sólbað í sundlaugagarðinum og einstaka sólbað meðan við röltum hingað og þangað.
- Versluðum frekar lítið en það var samt ekkert svo brjálað verð þannig séð...
- Allir brunnu eitthvað, flagna í dag... hehe...
- Komum til landsins 1. júlí.
- Fórum vestur 2. júlí.
- Dýrafjarðardagar með bekkjahitting, djamma, grilli og endalausu stuði...
- Komum heim í gærkvöldi og það er nokkuð góð tilfinning að vera komin heim og slaka á...
Næstu helgi er síðan ættarmót í minni ætt, Línu ömmu ætt, verður pottþétt æðislega gaman.
Og að hinum fréttunum...
13 vikna sónar áðan, eða hnakkaþyktarmælingin, kom allt æðislega vel út!
Barnið spriklaði helling, sýndi okkur allar hliðar, sáum höfuð, hendur, fætur, maga og miklu fleira... bara æðislega gaman skrítið en bara gaman... fengum svo geimverumynd með okkur heim. Fórum reyndar líka í blóðprufu eftir sónarinn og það skondna við það var að Bjarna stóð ekki á sama þar sem það var líka verið að taka fyrir ljósuna þannig að glösin voru bara 6. semsagt mikið blóð!
24 June 2009
tenerife
Auðvitað að njóta lífsins...
Ástæðan fyrir blogginu er samt sú að það er laumufarþegi með...
Upphaflega var bara panntað fyrir 5 manns, en raunin er svo sú að einn bumbubúi er með og er það okkar Bjarna.
Fyrir þá forvitnu getum við svo sagt að Laumufarþeginn er væntanlegur í heiminn 11. Janúar 2010.
Kveðja Guðrún og Bjarni...
05 June 2009
júní
vorum á síðustu helgi á vestfjörðum hjá Mömmu og Pabba, nokkuð ljúft enda afmæli í hverju húsi, sjaldan borðað jafn mikið af kökum en það er svona að hafa 3 afmælisbörn og yfir 10 manns á einu heimili.
Nú eru bara 19 dagar í Tenerife, okkur hlakkar helling til og erum við að reyna að koma einhverju skipulagi á ferðina, en við verðum á Las Americas og samkvæmt upplýsingunum sem við erum búin að fá er aðal gatan bara nánast fyrir utan hótelið okkar.
Gerum ráð fyrir að fara með iceland express en samt eitthvað rugl á fluginu þar sem bjarni fékk upplýsingar í gær um breytt flugnúmer.
Lítið hefur svosem gerst í þessu daglega lífi okkar, en ég náði upptökuprófinu þrátt fyrir að vera ekkert of bjartsýn þar sem ég klúðraði rituninni og var ekki alveg nógu sátt með það, en þetta gekk og fékk ég 6,5...
Við mætum Vestur bara fljótlega eftir að við lendum á landinu en keyrum að öllum líkindum dagin eftir að við komum til landsins sem er 2.júlí, þá taka við Dýrafjarðardagar með bekkjahitting og fleiru skemmtilegu. Þurfum svo að koma aftur norður 6. júlí þannig að við munum taka smá frí hér heima og fara svo á ættarmót á Laugum í Sælingsdal helgina eftir það sem er 11-12 minnir mig, semsagt nóg að gera... en eftir það erum við laus, þ.e. nema þegar við erum að vinna. en ákváðum að vera að vinna verslunarmannahelgina þannig ef einhver vill kíkja í heimsókn þá verðum við heima...
Bíladagar alveg að koma og held að það séu líkur á að litli róðir kíki í heimsókn, svo verða Raggý og Bergur og Signý og Lilla í bænum þannig að nóg að gera, en ég að vinna.... týpískt, en það verður síðasta helgin fyrir sumarfrí þannig það er ekkert svo slæmt.
jæja einhver komment önnur en ég, Bjanri og Hulda og þá er aldrei að vita nema ég fari að henda inn einhverju hér oftar...
semsagt hakið við name og url ef þið viljið skilja eftir með nafni...
bless bless, ekkert stress!
18 May 2009
maí
búin í prófum, féll í einu þannig það er upptökupróf 28. mái, en varð frekar pirruð þar sem ég fór að skoða prófið og ekki nema 3 spurningar vitlausar og ég bjóst við því að fá allaveganna 6 úr því.
en við erum búin að vera á svoldið miklu flakki þennan mánuðinn.
fyrstu helgina vorum við í kópavogi löng helgi með Huldu og co. Kristjana alltaf jafn æðisleg... svo fóru Bjarni og Hafsteinn saman á smábílaklúbbs svæðið þannig að það var gaman hjá öllum bara.
núna síðastliðnu helgi vorum við á Egilstöðum, áttum þar góða rólega helgi.
kíktum á Reyðarfjörð og Guðlaugu og familýuna hennar sem nýlega stækkaði meira. síðan átti að vera kýló en þar sem veðrið var ekkert svo gott datt það uppfyrir en við fórum bara öll saman í göngutúr úti í sveit í staðin.
Sunnudaginn ákvað Bjarni síðan að lappa uppá skröltið í Opelnum og fékk ég að sofa lengi HEHE
svo er planið að fara hvítasunnuhelgina vestur þar sem hún móðir mín á afmæli og þetta er löng helgi.
Svo fer að koma júní en eins og staðan er núna er rétt yfir 5 vikur í tenerife ferðina okkar, verður mjög gaman og allt sem á eftir því kemur, Dýrafjarðardagar, bekkjahittingur og Sumar, vá hvað það verður allt gaman.
já svo má ekki gleyma útskriftum en bara 4 vikur í nönnu útskrift og jón þar á eftir!!
en nice to write here...
heyrumst, sjáumst eða skjáumst!!
20 April 2009
Apríl nánast búinn
Ég er búin vera á fullu í verkefna vinnu enda bara 2 dagar þangað til þessu önn telst að mestu búin, þá eru bara eftir 2 próf og skil á 1 stóru verkefni... en samt vonandi klárum við það bara í þessari viku!!
Það er auðvitað hellingur búið að gerast annað en skólin síðustu mánuði og sem dæmi má nefna
- Hulda Hrönn 29 ára 12 apríl, ásamt því að deila því með umheiminum að hún gengur með barn.
- Hadda frænka og Auður frænka tilkynntu líka að þær væru óléttar...
- Haukur kom í heimsókn, á Söngkeppni framhaldsskólanna.
- Ég fór í Vísindaferð í Vífilfell.
- Páskar með tilheyrandi nammi áti og hamborgarahrygg.
- Bjarni fór í jeppaferð.
Alveg heill helingur sem ekki telst daglegt líf...
En í sambandi við Söngkeppnina vill ég samt segja að mér finnst frekar hallærislegt að VMA skyldi hafa hætt við gistipláss klukkan 5 á föstudeginum þar sem unglingar voru lagiðr af stað til að mæta á keppnina og ég óska þess bara að þetta komi aldrei aftur fyrir þar sem unglingar sem fengu að fara með þeim skylirðum að vera undir gæslu þarna enduðu í heimahúsi hjá fólki sem vorkenndi þeim... ekki nógu gott!!
en ætla á bókasafnið, vantar efni um ólík sjónarhorf á fatlanir...
kveðja Guðrún Ásta sem er alltof löt við að blogga!!